Vöruflokkur: Býkúpur

Býkúpurnar eru hannaðar fyrir kalt loftslag og hafa þann eiginleika fram yfir flesta aðra framleiðendur að kassarnir læsast saman með gróp svo að minni hætta er á dragsúg á milli kassa sem gæti kælt búið.  Þessi hönnun minnkar einnig líkur á því að vatn komist inn í búin þegar það rignir lárétt eins hér á Íslandi.  Býkúpurnar eru samt sem áður samhæfar öðrum býkúpum og lítið mál að nota með öðrum framleiðendum gerist þess þörf. Hart plast er á öllum slitflötum sem eykur endingu þeirra.
Holrými er í þaki sem gefur auka pláss þegar fóðrað er með sykurdeigi ofan á ramma í efsta kassa.

Býkúpur